Lífið

Antídóp-Svavar klár í slaginn

Svavar sigurðsson. Hefur á þrettán og hálfu ári safnað 150 milljónum í baráttu sinni gegn eiturlyfjum. Ef ekki tekst að vinna bug á bágri fjárhagsstöðu er hætt við að sú barátta fari fyrir lítið. Hér er mynd af gegnumlýsingarbúnaði.fréttablaðið/arnþór
Svavar sigurðsson. Hefur á þrettán og hálfu ári safnað 150 milljónum í baráttu sinni gegn eiturlyfjum. Ef ekki tekst að vinna bug á bágri fjárhagsstöðu er hætt við að sú barátta fari fyrir lítið. Hér er mynd af gegnumlýsingarbúnaði.fréttablaðið/arnþór

Svavar Sigurðsson, einarður baráttumaður gegn eitur­lyfjadjöflinum um árabil, beinir nú sjónum sínum að fjárhagsvanda landsins. Og er þess albúinn að taka við af stjórnvöldum – sem eru við uppgjöf að hans mati.

„Já, ég er þess albúinn að taka við þegar þeir hafa gefist upp. Þú sérð hvaða árangri ég hef náð í eiturlyfjamálunum,“ segir Svavar Sigurðsson sem hefur nú í rúm þret­tán ár barist með oddi og egg gegn fíkniefnafjandanum – með góðum árangri að sögn. Svavar segir mikinn uppgjafartón kominn í ráðamenn og telur þá á hinum mestu villigötum í ráðaleysi sínu. Þeir einblíni á afleiðinguna í stað orsakarinnar. Og meðan svo er komast menn hvorki lönd né strönd.

Spurður hvaða ráð hann sjálfur hafi í erminni vitnar Svavar til spádóma Nostradamusar, sem byggjast á Jesajabók Biblíunnar. Svavar varð fyrir vitrun fyrir fimmtíu árum. Hann er á vegum Drottins. „Þetta er stórkostlegt tæki sem ég hef í höndunum. Ég spyr andann og svörin koma í skynjunum.“ Svavar segir svo frá því að hann hafi nú talað við stjórnarráðið, ráðuneytin, forseta Alþingis, ritara forseta, sent erindi – einblöðung þar sem segir af spádómum Nostradamusar – í öll sendiráð á Íslandi, öll sendiráð Íslands erlendis og sé nú að vinna í að setja sig í samband við Hvíta húsið. „Ég hef talað við 34 þingmenn á tveimur dögum. Og svo 14 nokkru seinna. Hringi bara í gsm-símana. Mest hef ég talað við Tryggva Herbertsson. Ég hef álit á honum. Ég hef bæði hringt í hann, sent honum sms-skeyti og tölvupóst. Ég myndi vilja vinna með þeim og býðst til þess að koma á þeirra fund. En ég veit að ég fæ ekki að komast að fyrr en þeir hafa gefist upp. Og það er uppgjafartónn í dag.“

Svavar er þegar landsþekktur fyrir baráttu sína gegn fíkniefnum og hefur orðið verulega ágengt í þeim efnum. Hann hefur fengið frá fyrirtækjum og hinu opinbera 150 milljónir sem hann hefur veitt í baráttuna, til dæmis keypt auglýsingar og gegnumlýsingarbúnað fyrir tollara. Einkum hefur hann lagt upp úr því að halda Vestmannaeyjum hreinum. Þegar spurður um ástæður harðrar mótstöðu hans við eiturlyf, sem hann hefur aldrei prófað, segir hann: „Eigum við ekki að segja að Drottinn sé á móti þeim.

Hann fékk mig til að standa í þessu. Ég hef verið í fimmtíu ára þjálfun. Þetta er köllun. Þetta hefur verið erfitt. Og ef þú myndir verða fyrir þessu eins og ég fyrir fimmtíu árum myndir þú detta á gólfið, hrópa á hjálp og verða keyrður inni við sundin blá. Mikill sársauki. En það hefur dregið úr honum – ég hef verið að herðast og herðast.“ Svavar einbeitir sér nú að skuldastöðunni því að í fjárleysi er vonlaust að standa í baráttunni gegn dópinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.