Gríðarlegur verðmunur á milli verslana 12. júní 2009 11:31 Mynd/GVA
Gríðarlegur verðmunur reyndist á milli verslana þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á 54 vörutegundum í 8 verslunum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri 9. júní. Fjarðarkaup var í flestum tilfellum ódýrari en aðrar þjónustuverslanir. Bónus var oftast með lægsta verðið á þeim vörum sem kannaðar voru eða í 27 skipti af 54. Krónan var 14 sinnum með lægsta verðið. Kaskó og Fjarðarkaup 8 sinnum og Nettó 6 sinnum. Samkaup-Úrval var 22 sinnum með hæsta vöruverðið, Nóatún 16 sinnum og Hagkaup 9 sinnum. Verð var skoðað í fjórum lágvöruverðsverslunum og fjórum þjónustuverslunum og verðlagseftirlitið segir að það veki athygli að Fjarðarkaup hafi í flestum tilfellum verið ódýrari en aðrar þjónustuverslanir. Meiri verðmunur var á milli hæsta og lægsta verðs í þjónustuverslununum en í lágvöruverðsverslununum og er helsta skýringin sú að Fjarðarkaup sker sig úr í verðlagningu. „Það er nauðsynlegt fyrir almenning að fylgjast vel með verðlagi á þessum umbrotatímum. Eins og fram kemur í verðkönnuninni er mikill verðmunur á milli verslana á brauðmeti og kexi, kjötvörum, dósamat og þurrvöru, ávöxtum og grænmeti. Því þurfa neytendur að hafa vakandi auga á matvöruverði sem er síbreytilegt," segir í tilkynningu frá ASÍ. Þar segir jafnframt að oft sé erfitt að átta sig á verðmismun vegna þess að sömu vörur eru seldar í mismunandi stærðum og stærri pakkningar eru ekki endilega ódýrari. Oft sé erfitt fyrir neytendur að átta sig á raunverulegu mælieiningaverði, þar sem mikið sé af formerktum vörum sem seldar séu með álímdum afsláttarmiða sem tilgreinir ekki endanlegt vöruverð. „Því er ekki endilega hagkvæmara að kaupa vöru með afslætti, varan gæti verið ódýrari í öðrum pakkningum með engum afslætti. Það getur borgað sig að eyða tíma í verðsamanburð í versluninni áður en ákvörðun er tekin um kaup á vörunni."
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira