Aðeins níu mál tengd hagsmunum atvinnulífs og heimila 3. mars 2009 18:23 Birgir Ármannsson veltir því fyrir sér hvort samningar ríkisstjórnarinnar við Framsóknarflokkinn séu tímafrekir.
Ríkisstjórnin hefur einungis lagt fram 16 mál á þingi af þeim 30 frumvörpum og þingsályktunartillögum sem ríkisstjórnin hefur afgreitt frá sér frá því hún tók við völdum í lok janúar, segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Ríkisstjórnin lagði, á blaðamannafundi í morgun, fram lista yfir þau þingmál sem ríkisstjórnin hefur afgreitt frá sér frá því hún tók við völdum í lok janúar. „Þar er um að ræða 30 frumvörp og þingsályktunartillögur. Á fundinum talaði forsætisráðherra um að ríkisstjórnin hefði afgreitt málin til þingsins en rétt er að geta þess að nú þegar þingfundi er að ljúka í dag hafa aðeins 16 þessara mála verið lögð fram á þingi," segir Birgir. Hann bendir á að sjö þingmál hafi þar með bæst við frá því í síðustu viku en fjórtán frumvörp eða stjórnartillögur séu enn einhvers staðar á leiðinni milli Stjórnarráðsins og Alþingishússins. „Spyrja má hvort þessi mál liggi óafgreidd í þingflokkum stjórnarflokkanna eða hvort samningar við Framsóknarflokkinn taki svona langan tíma. Það er að minnsta kosti ekki rétt sem ráða mátti af orðum Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á blaðamannafundinum, að þingið sé með einhverjum hætti að draga lappirnar við afgreiðslu þessara mála," segir Birgir. Þá segir Birgir að aðeins 9 af þessum 30 málum tengist hagsmunum atvinnulífs og heimila samkvæmt skilgreiningu ríkisstjórnarinnar sjálfrar. „Ef ríkisstjórnarflokkarnir settu þessi 9 mál í forgang væri ekkert því til fyrirstöðu að koma þeim með eðlilegum hætti í gegnum þingið og ljúka jafnframt þingstörfum þannig að eðlilegur tími gefist til að heyja kosningabaráttu. Vandinn eykst hins vegar ef þessir flokkar ætla sér líka að fá öll hin málin afgreidd fyrir þinglok," segir Birgir.
Mest lesið Módelið svínvirkar fyrir marga en þó ekki alla Innlent Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Innlent Árásarmaðurinn í Minnesota handtekinn Erlent Fyrsta konan sem stýrir MI6 Erlent Sagður hafa bannað Ísraelum að drepa æðstaklerkinn Erlent Lengdist um níu sentímetra og lærði að ganga upp á nýtt Innlent Höfðu samband við frönsku lögregluna vegna andlátanna Innlent Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Innlent „Kærkomin ró“ yfir höfuðborgarsvæðinu Innlent Trump vill að ICE spýti í lófana og handtaki fleiri ólöglega innflytjendur Erlent Fleiri fréttir Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Lágmarks lokanir í kringum Austurvöll á 17. júní Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Þref á þingi og ráðherra vill bregðast við hækkandi raforkuverði Björgunarsveitir leita Sigríðar áfram Lausir úr haldi grunaðir um líkamsárás á Akureyri Höfðu samband við frönsku lögregluna vegna andlátanna Ný skýrsla: Raforkuverð heimila hafi hækkað um ellefu prósent Verður verkefnastjóri viðburða og grasrótarstarfs hjá Viðreisn Bein útsending: Kynning á þróun raforkukostnaðar og áhrifum á notendur Hvorki bókun 35 né veiðigjöld á dagskrá í dag Módelið svínvirkar fyrir marga en þó ekki alla „Kærkomin ró“ yfir höfuðborgarsvæðinu „Svo bakkarðu upp að línu og þenur drusluna“ Umræða um bókun 35 taki ekki tíma frá öðrum málum Dvalarheimili klárt á Laugarvatni en ekkert gerist í stjórnkerfinu „Lögreglan var ekki að gera það í fyrsta sinn“ Fresta leit að Sigríði Slökktu gróðurelda á Ströndum með aðstoð þyrlu Lengdist um níu sentímetra og lærði að ganga upp á nýtt Andlát frönsku ferðamannanna vekur eftirtekt erlendis Skýrsla tekin af frönsku konunni og búið að ræða við vitni Uppnám á Alþingi og í beinni frá Bíladögum Óvæntur gestur sást í fyrsta sinn á Íslandi Sjá meira