Innlent

Enginn ráðherra sjáanlegur á fundi samfylkingarmanna

Hvar er Össur?
Hvar er Össur?

Enginn ráðherra Samfylkingarinnar er sjáanlegur fréttamönnum Stöðvar 2 og Vísis á fundi reykvískra samfylkingarmanna í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld.

Nokkrir þingmenn úr Reykjavíkurkjördæmunum eru á fundinum. Þar á meðal eru Helgi Hjörvar og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Einnig eru borgarfulltrúarnir Björk Vilhelmsdóttir og Dagur B. Eggertsson staddir þar. Þá er Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarkona Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur formanns Samfylkingarinnar, viðstödd fundinn.

Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag er Ingibjörg Sólrún enn á sjúkrahúsi í Svíþjóð. Von er á henni heim í lok vikunnar en hún mun þá leggjast inn á Landspítala.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×