Innlent

Ekkert banaslys á sjó á einu ári

Hátíðarhöldin tókust vel Guðmundur Hallvarðsson, formaður sjómannadagsráðs, segir það hafa gefist vel að flytja hátíðarhöldin í Reykjvaík frá Miðbakka og út á Grandagarð.
Hátíðarhöldin tókust vel Guðmundur Hallvarðsson, formaður sjómannadagsráðs, segir það hafa gefist vel að flytja hátíðarhöldin í Reykjvaík frá Miðbakka og út á Grandagarð.

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í gær og raunar var helgin víða undir­lögð enda hefur þróunin hin síðari ár verið sú að skipulögð sjómannadagskrá teygir sig yfir á nokkra daga.

Í Reykjavík hófust hátíðarhöldin á laugardag og héldu síðan áfram í gær með skemmtidagskrá á Grandagarði. Að sögn Guðmundar Hallvarðssonar, formanns sjómannadagsráðs, tókust hátíðarhöldin vel. „Við fengum afar góðar undirtektir með þennan tilflutning á sjómannadeginum frá Miðbakka og út á Grandagarð enda meiri nálægð við Sjóminjasafnið og varðskipið Óðin svo dæmi séu tekin. Þangað streymdi geysilegur fjöldi fólks báða dagana auk þess sem það leit á furðufiska Hafrannsóknastofnunar, bragðaði sjávarfang, fór í siglingar og fleira.“

Guðmundur segir að það sem standi upp úr sé þó að þetta er í fyrsta skipti, frá því að sjómannadagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1938, sem enginn hefur farist á sjó á milli sjómannadaga, en mannslífin hafa oft skipt tugum. „Því var engin stjarna í minningar­fánanum sem var gengið með inn í sjómannadagsmessuna í Dómkirkjunni að þessu sinni,“ segir Guðmundur, en herra Karl Sigurbjörnsson biskup predikaði auk þess að minnast drukknaðra sjómanna.

Um miðjan dag var svo að venju hátíðardagskrá en hún fór að þessu sinni fram í Sjóminjasafninu á Grandagarði. Þar flutti Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra ávarp ásamt fulltrúum sjómanna og útvegsmanna.

Aðspurður segist Guðmundur ekki vita til þess að nokkur íslensk skip hafi verið á veiðum í gær. „Ég held að allir hafi virt lög um að vera í landi á sjómannadaginn.“

- ve




Fleiri fréttir

Sjá meira


×