Innlent

Þúsund ökumenn stöðvaðir

Mynd/Pjetur

Um eitt þúsund ökumenn voru stöðvaðir á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu frá fimmtudegi til laugardags í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu.

Átta ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Ellefu til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum. Lögreglan stöðvaði einnig för ökumanns sem var undir áhrifum fíkniefna og þá voru teknir allnokkrir ökumenn sem höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.

Athygli lögreglu vakti hversu margir ökumenn höfðu ekki ökuskírteini meðferðis. Á fimmtudagskvöldið, þegar um 200 ökumenn voru stöðvaðir, hafði um fjórðungur þeirra skilið ökuskírteinið eftir heima en slíkt kæruleysi kostar viðkomandi 5000 krónur í sekt.

Fram kemur í tilkynningu lögreglu að markmiðið með þessu átaki gegn ölvunarakstri sé að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunarakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni. „Minnt er á viðvörunarorðin Eftir einn ei aki neinn en þau eiga alltaf við. Átakið nær að sjálfsögðu einnig til aksturs undir áhrifum fíkniefna en afleiðingar þess geta sömuleiðis verið skelfilegar."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×