Innlent

Forsætisráðherra: Munnleg skýrsla um efnahagshorfur

Jóhanna Sigurðardóttir.
Jóhanna Sigurðardóttir.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun síðar í dag flytja munnlega skýrslu um efnahagshorfur á Alþingi. Skýrslan er flutt að beiðni þingflokks sjálfstæðismanna. Fyrirkomulagið á umræðunni er á þann veg að forsætisráðherra flytur fimmtán mínútna langa framsögu og í framhaldinu munu aðrir flokkar fá 10 mínútur hvort fyrir talsmenn sína í fyrstu umferð og fimm mínútur í annari og þriðju umferð. Við lok umræðunnar hefur forsætisráðherra síðan fimm mínútur til þess að veita andsvar.

Gert er ráð fyrir að umræðurnar hefjist klukkan hálf fjögur en við upphaf þingfundar sem hefst klukkan þrjú eru óundirbúnar fyrirspurnir. Þar verða ráðherrar menntamála, viðskipta, heilbrigðismála og utanríkismála auk forsætisráðherra viðstaddir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×