Innlent

Jóhanna og Steingrímur funda um nýja stjórn

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon á blaðamannafundi í gær.
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon á blaðamannafundi í gær. Mynd/GVA

Stjórnarmyndunarviðræðum Samfylkingar og Vinstri grænna verður framhaldið í dag og munu formenn flokkanna funda saman eftir hádegi.

„Flestir undirhóparnir eru búnir að mestu með sína vinnu þannig að nú eru þau tvö að púsla þessu saman," segir Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra. Hann á von á að myndun nýrrar ríkisstjórnar ljúki á næstu dögum.

Þá segir Hrannar að meira og minna báðir þingflokkar stjórnarflokkanna auk fleiri aðila hafi verið virkir í sjö til átta undirhópum í viðræðunum undanfarna daga. Hann segir að hóparnir hafi að mestu lokið við vinnu sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×