Grimmdarleg hefnd Audda 22. maí 2009 08:30 Sjónvarpstrúðurinn krullhærði átti von á hefndum frá félaga sínum - en að hann gengi svona langt - það gat hann ekki séð fyrir.
Vinnustaðahrekkur Sveppa tókst vonum framar og hefnd Audda reyndist brútal. „Sveppi hló nú en lét mig heyra það þegar við vorum búnir að slökkva á kamerunni. Sagði að ég ætti ekki von á góðu. Honum þótti þetta full brútalt,“ segir sjónvarpsmaðurinn Auddi. Einn dagskrárliður í þættinum Sveppi og Auddi á Stöð 2 er vinnustaðahrekkur. Sveppi náði að stríða Audda rækilega nýverið þegar hann bætti unglingnum Búa Einarssyni á vinalista Audda á Facebook og Búi þessi fór þá að ofsækja Audda honum til lítillar skemmtunar. Hann lá ekki á þeirri skoðun sinni að krakkafíflið væri með öllu óþolandi. „Já, hann má eiga það fíflið, að hann náði mér,“ segir Auddi. En hefnd Audda reyndist grimmileg og það fá aðdáendur þeirra að sjá í kvöld. „Ég átti eina mjög asnalega mynd af Sveppa þar sem hann liggur nakinn í kuðungi úti á svölum. Mynd sem tekin var úti í Danmörku okkur Huga til skemmtunar á sínum tíma. Sem betur fer var henni aldrei eytt,“ segir Auddi. Ekki er víst að Sveppi taki undir það því myndina lét Auddi stækka og fékk Strætó í lið með sér. Myndin var sett risastór aftan á leið 15 með textanum: Áttu í veseni með aukakílóin? Þú ert ekki einn. Kveðja, Sveppi. „Svo tók ég Sveppa með mér í smá bíltúr. Ég fékk að heyra á hvaða leið Strætó var, og þegar við vorum að keyra yfir Gullinbrú sagði ég við Sveppa: Heyrðu, ert þetta ekki þú? Og þá blasti myndin við,“ segir Auddi og vill ekki meina að hann eigi skilið að fá það óþvegið frá Sveppa í framhaldinu. Vill meina að nú séu þeir jafnir. jakob@frettabladid.is
Mest lesið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Lífið samstarf Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Tónlist Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Fleiri fréttir „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Sjá meira