Aldrei verið í betra formi 4. júlí 2009 08:00 Eiríkur Hauksson fagnar fimmtugsafmæli sínu í dag og blæs af því tilefni til mikillar rokkveislu í Austurbæ. Hann segist aldrei hafa verið í betra formi og aldrei hafa haft jafn mikið að gera.fréttablaðið/Arnþór
Einhver ástsælasti rokksöngvari þjóðarinnar fyrr og síðar, Eiríkur Hauksson, fagnar fimmtugsafmæli sínu í dag. Hann blæs af því tilefni til mikillar afmælisveislu í Austurbæ. „Takmörk, nei, þetta er samt fín hugmynd. Takk fyrir hana, ég kannski geri það bara, set mér einhver takmörk í tilefni dagsins," segir Eiríkur Hauksson, rokksöngvari Íslands númer eitt. Í dag eru fimmtíu ár liðin síðan Eiríkur leit dagsins ljós í fyrsta skipti og óhætt er að segja að hann hafi sett mark sitt á íslenskt tónlistarlíf á þeim fimmtíu árum sem hann hefur gengið um á meðal manna. „Ég er bara fyrst og fremst ánægður að verða þetta gamall, ég meina, hver hefði búist við því?" segir Eiríkur og hlær. „Svona miðað við aldur og fyrri störf. Ég lít því á þetta sem glæsileg tímamót." En þrátt fyrir að Eiríkur sé að verða fimmtugur er hvergi neinn bilbug á honum að finna. Hann segist reyndar aldrei hafa haft meira að gera. „Ég er að taka upp plötu með hljómsveit sem heitir Magic Pie, við erum búnir að taka upp nokkra grunna og klárum plötuna seinna á þessu ári. Og svo mun ég syngja eitthvað fyrir vin minn, Ken Hensley, í júlí og ágúst," segir Eiríkur, sem hefur að mestu haldið sig utan landsteinanna undanfarin ár ef undanskilið er Eurovisionlagið Ég les í lófa þínum. „Jú, auðvitað kemur til greina að gefa eitthvað út á móðurmálinu, það yrði þá að vera verkefni fyrir 2010 því ég er alveg fullbókaður fyrir þetta ár." Eiríkur segist aldrei hafa verið í betra formi, bæði líkamlega og andlega. „Auðvitað mættu fjúka tvö eða þrjú kíló svo að maður fengi þvottabretti á magann en annars er ég bara mjög góður, verð aldrei veikur eða neitt þannig. Nema bara af stóru sjúkdómunum eins og krabbameini," segir Eiríkur og bætir því við að kannski séu þessi tímamót einmitt svolítið sérstök í því ljósi, að hafa unnið bug á þeim mikla vágesti. „Já, það er kannski alveg rétt, maður lítur þennan áfanga kannski öðrum augum í ljósi þessa."
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira