Innlent

Fjarðabyggð á móti innköllun aflaheimilda

Helga Jónsdóttir er bæjarstjóri í Fjarðabyggð.
Helga Jónsdóttir er bæjarstjóri í Fjarðabyggð. Mynd/GVA
Bæjarráð Fjarðabyggðar leggst eindregið gegn áformum stjórnvalda um fyrningarleiðina svokölluðu sem felur í sér innköllun aflaheimilda á 20 árum. Umbætur í stjórnkerfi fiskveiða þurfi að vera vel ígrundaðar og bæjarráð Fjarðabyggðar varar við aðgerðum sem veikt geti starfsgrundvöll sjávarútvegsins og stefnt búsetu í óvissu.

Í ályktun bæjarráðs segir að núgildandi fiskveiðistjórnunarkerfi hafi fært samfélagi og sjávarútvegi á Íslandi margvíslegan ávinning og leitt til umbóta í greininni.

„Það er einnig hlutverk stjórnvalda að sníða af kerfinu annmarka og stuðla að því að sátt náist um það. Við það þurfa stjórnvöld að gæta fulls samráðs við hagsmunaðila. Sátt verður ekki náð með umbyltingu eins og þeirri sem boðuð er með fyrningarleið."

Neskaupstaður, Fáskrúðsfjörður, Reyðarfjörður, Eskifjörður, Stöðvarfjörður og Mjóifjörður tilheyra bæjarfélaginu Fjarðabyggð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×