Innlent

Vilja stjórnmálasamband við stjórn Hamasliða í Palestínu

Sveinn Rúnar Hauksson er formaður Félagsins Íslands-Palestínu.
Sveinn Rúnar Hauksson er formaður Félagsins Íslands-Palestínu. Mynd/GVA
Félagið Ísland-Palestína skorar á ríkisstjórnina að koma þegar í stað á sambandi við ríkisstjórn Palestínumanna á Gazaströndinni, sem er á yfirráðasvæði Hamassamtakanna, til jafns við bráðabirgðastjórnina sem Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, skipaði í Ramallah.

Félagið vill að ríkisstjórnin virði sjálfsákvörðunarrétt palestínsku þjóðarinnar í samræmi við ályktun Alþingis frá maí 1989 og ályktanir Sameinuðu þjóðanna. Í því felist meðal annars að viðurkenna þau stjórnvöld sem séu lýðræðislega kjörin af þjóðinni. Í síðustu kosningum til Palestínska löggjafarþingsins sem fram fóru í janúar 2006 hafi Hamassamtökin fengið meirihluta á þinginu eða nærri 60% þingmanna.

„Þrátt fyrir úrslit kosninganna og að stjórn hefði verið mynduð sem naut stuðnings hinna ólíku stjórnmálaafla í landinu neituðu Ísraelsstjórn, Bandaríkjastjórn og Evrópusambandið að viðurkenna lýðræðislega stjórn Palestínumanna. Af Vesturlöndum var Noregur eina ríkið sem viðurkenndi palestínsku stjórnina," segir í ályktun félagsins.

Í framhaldinu hafi komið til mikilla átaka Hamas og Fatah-samtakanna á Gaza sem Ísrael og Bandaríkjastjórn hafi kynt undir. Nú séu tvenn palestínsk stjórnvöld í landinu.

Að mati félagsins er stjórnmálasamband við stjórnina á Gaza framlag til sameiningar palestínsku stjórnmálaaflanna, en viðræður eru í gangi á milli þeirra meðal annars um myndun nýrrar þjóðstjórnar. „En fyrst og fremst er það stuðningur við brýnasta verkefnið gagnvart Palestínu nú, sem er að rjúfa herkvína um Gaza."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×