FME verndi uppljóstrara 3. mars 2009 12:09 Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra.
Fjármálaeftirlitinu verður heimilt ef nýtt frumvarp viðskiptaráðherra verður samþykkt að lækka eða fella niður sektir og falla frá kæru á hendur fólki sem afhendir eftirlitinu gögn eða veitir því upplýsingar sem gætu varpað ljósi á bankahrunið og lögbrot á fjármálamarkaði. Frumvarpið er hugsað til verndar uppljóstrurum, það er fólki sem býr yfir upplýsingum sem gætu gagnast Fjármálaeftirlitinu við rannsókn á bankahruninu en gæti veigrað sér við að láta eftirlitinu upplýsingarnar í té af ótta við að fá á sig sekt eða kæru. Frumvarpinu var dreift á Alþingi í gær og mun Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra mæla fyrir því eftir hádegi í dag. Frumvarpið er liður í viðleitni ríkisvaldsins til að auka líkur á því að menn stigi fram með upplýsingar sem gætu liðkað fyrir rannsókn á hruninu. Víða í kerfinu er verið að auka heimildir til að ná þessu marki, en sambærilegar heimildir hafa verið til staðar fyrir Samkeppniseftirlitið til að fólk upplýsi um brot á samkeppnisreglum. Til að ná fram auknum heimildum fyrir Fjármálaeftirlitið þarf breytingar á ýmsum lögum sem allar snúa að því að eftirlitinu verði heimilt að falla frá sektum ef fyrirtæki eða einstaklingur er fyrstur til að láta eftirlitinu í té upplýsingar eða gögn sem geti leitt til rannsóknar eða sönnunar á broti. Fjármálaeftirlitinu er einnig heimilt að lækka sektir á hendur mönnum ef viðkomandi hefur haft frumkvæði að því að láta eftirlitinu í té upplýsingar eða gögn telji FME að upplýsingarnar séu mikilvæg viðbót við þau sönnunargögn sem það hefur þegar í fórum sínum.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira