Atburðir dagsins við alþingishúsið 20. janúar 2009 18:43
Umsátursástand ríkti við Alþingi í dag þar sem um þúsund manns mættu til að krefjast þess að ríkisstjórnin víki. Mikil reiði var í fólkinu og handtók lögregla á annan tug mótmælenda. Lillý Valgerður Pétursdóttir fylgdist með mótmælunum í allan dag. Hópur fólks safnaðist saman við Alþingishúsið þegar klukkan var að verða eitt þegar Alþingi kom aftur saman til fundar eftir jólafrí. Lögregla stengdi borða fyrir framan húsið til að koma í veg fyrir að fólk færi að húsinu, þeir dugðu skammt. Fólkið barði potta og pönnur og reyndi að búa til sem mest læti. Mótmælin voru hávær og kröfurnar skýrar sem fyrr. Stjórnvöld burt. Erfitt var að gera sér grein fyrir hversu margir voru á svæðinu þar sem hópurinn dreifðist en áætla má að þeir hafi allavega verið hátt í eitt þúsund. Fljótlega klauf hópur sig út úr og fór inn í Alþingisgarðinn. Þar barði fólkið á glugga og tók lögreglan sér þá stöðu við gluggana. Þegar leið á breiddust út nokkur átök milli lögreglu og mótmælenda og handtók lögregla þá nokkra.. Lögreglu tókst þó ekki að flytja þá strax af svæðinu. Sérsveitarmenn mættu á svæðið. Hópurinn var beðinn að færa sig og þegar hann varð ekki við þeirri beiðni notaði lögreglan piparúða. Nokkur hópur þurfti að leita aðhlynningar eftir að hafa hafa fengið úðann í augun en þeirra á meðal voru ljósmyndarar sem voru að taka myndir af atburðarásinni. Lögregla hélt þeim sem voru handteknir við húsið. Hjá þeim var líka ungur strákur en barnaverndaryfirvöld voru kölluð til vegna hans. Nokkur pattstaða myndaðist svo um tíma þar sem mótmælendur stóðu sem fastast og hvorki þeir né lögregla vildu færa sig. Þeir sem handteknir voru voru fluttir í gegnum Alþingishúsið niður í bílageymslu þar sem flytja átti þá burt. Það gekk hins vegar hægt þar sem fólk hafði komið sér fyrir við hliðið að kjallaranum.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Fleiri fréttir Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Sjá meira