Grunur leikur á íkveikju 19. október 2009 06:00 Skólavörðustígur 40 Bruninn í gær var sá þriði á jafnmörgum mánuðum í yfirgefnu húsi í miðbænum. fréttablaðið/anton
Allt tiltækt lið slökkviliðs var kallað út þegar tilkynnt var um eld í húsinu við Skólavörðustíg 40 laust fyrir klukkan 15 í gærdag. Húsið var mannlaust þegar slökkvilið og lögregla komu á staðinn og gekk slökkvistarf vel. Töluverðar skemmdir urðu á húsinu. Grunur leikur á íkveikju. Eldurinn kom upp í risi hússins. Samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliðinu var tilkynnt um eldinn af vegfarendum sem áttu leið hjá. Sömu vegfarendur fóru inn í húsið og gengu úr skugga um að enginn væri á neðri hæðunum tveimur. Nokkuð ljóst væri að um íkveikju hafi verið að ræða. Lögregla ræddi í gær við þrjá unga menn sem sáust hlaupa frá húsinu í þann mund sem eldurinn blossaði upp. Enginn var þó handtekinn og mönnunum sleppt. Húsið er í eigu félagsins Samtímalistar ehf. sem rekur listagalleríið Turpentine neðar á Skólavörðustíg. Húsið hafði staðið autt í nokkurn tíma áður en hústökufólk settist þar að í ágúst síðastliðnum. Sá hópur opnaði þar meðal annars félagsrými og fríbúð í september. Að sögn varðstjóra hjá lögreglu er ekki vitað hvort hústökufólkið hafðist enn við í húsinu fyrir brunann. Rafmagn hafði verið tekið af húsinu. Sindri Sindrason, einn af eigendum Samtímalistar ehf., segir að til hafi staðið að rífa húsið og byggja á reitnum. Erindi þess efnis hafi verið til úrvinnslu í kerfinu í mörg ár. Eigendurnir hafi ákveðið að aðhafast ekki vegna hústökufólksins. - kg
Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Innlent Fleiri fréttir Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Sjá meira