Innlent

Byrgismál: Styttist í ákvörðun um ákæru á meintum fjárdrætti

Helgi Magnús Gunnarsson
Helgi Magnús Gunnarsson

Helgi Magnús Gunnarsson yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra segir að niðurstöðu sé að vænta í máli Guðmundar Jónssonar í Byrginu sem snýr að meintum skattalagabrotum og fjárdrætti.

Í frétt Fréttablaðsins frá því í október á síðasta ári kom fram að niðurstöður rannsóknar efnahagsbrotadeildar bentu til þess að um 20 milljóna króna fjárdráttur hafi átt sér stað í rekstri Byrgisins þegar Guðmundur var þar forstöðumaður. Jafnframt að umtalsverð skattsvik hafi verið höfð í frammi á sama tíma. Ákæra hefur ekki verið gefin út í málinu.

„Þetta er á lokastigi og kemur í ljós á næstu dögum. Það er verið að færa gögn yfir og meta hvað eigi að gera, þetta verður komið fyrir sumarfrí," segir Helgi Magnús í samtali við fréttastofu.

Ríkisendurskoðun vann á sínum tíma skýrslu um fjármál meðferðarheimilisins og í kjölfar hennar var ákveðið að efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra færi í rannsón á málinu.

Niðurstöður skýrslu Ríkisendurskoðunar bentu til að ólöglega hefði verið staðið að rekstrinum og að fjármunir sem sannanlega hefðu runnið til stjórnenda og starfsmanna Byrgisins væru langt umfram það sem fram kæmi í bókhaldi eða ársreikningum félagsins.

Hinn skattalegi þáttur rekstrar meðferðarheimilisins fór hins vegar til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra. Að henni lokinni kærði skattrannsóknarstjóri niðurstöðurnar til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra. Það fól í sér að talið væri að um væri að ræða stórfelld refsiverð brot hvað varðar þennan þátt í starfsemi Byrgisins sem ekki væri hægt að afgreiða í yfirskattanefnd, heldur yrðu málið að fara til rannsóknar hjá lögreglu. Efnahagsbrotadeildin rannsakaði þessa tvo rekstrarþætti samhliða.

Guðmundur Jónsson var sóttur á heimili sitt í Mosfellsbæ í gærkvöldi og færður til afplánunar vegna kynferðisbrota gegn þremur stúlkum sem voru skjólstæðingar hans í Byrginu.

Guðmundur hafði ekki sinnt boðun í afplánun og því var hann handtekinn í gærkvöldi. Hans bíður nú tveggja og hálfs árs fangelsisvist vegna þeirra brota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×