Byrgismál: Styttist í ákvörðun um ákæru á meintum fjárdrætti 20. maí 2009 10:43 Helgi Magnús Gunnarsson
Helgi Magnús Gunnarsson yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra segir að niðurstöðu sé að vænta í máli Guðmundar Jónssonar í Byrginu sem snýr að meintum skattalagabrotum og fjárdrætti. Í frétt Fréttablaðsins frá því í október á síðasta ári kom fram að niðurstöður rannsóknar efnahagsbrotadeildar bentu til þess að um 20 milljóna króna fjárdráttur hafi átt sér stað í rekstri Byrgisins þegar Guðmundur var þar forstöðumaður. Jafnframt að umtalsverð skattsvik hafi verið höfð í frammi á sama tíma. Ákæra hefur ekki verið gefin út í málinu. „Þetta er á lokastigi og kemur í ljós á næstu dögum. Það er verið að færa gögn yfir og meta hvað eigi að gera, þetta verður komið fyrir sumarfrí," segir Helgi Magnús í samtali við fréttastofu. Ríkisendurskoðun vann á sínum tíma skýrslu um fjármál meðferðarheimilisins og í kjölfar hennar var ákveðið að efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra færi í rannsón á málinu. Niðurstöður skýrslu Ríkisendurskoðunar bentu til að ólöglega hefði verið staðið að rekstrinum og að fjármunir sem sannanlega hefðu runnið til stjórnenda og starfsmanna Byrgisins væru langt umfram það sem fram kæmi í bókhaldi eða ársreikningum félagsins. Hinn skattalegi þáttur rekstrar meðferðarheimilisins fór hins vegar til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra. Að henni lokinni kærði skattrannsóknarstjóri niðurstöðurnar til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra. Það fól í sér að talið væri að um væri að ræða stórfelld refsiverð brot hvað varðar þennan þátt í starfsemi Byrgisins sem ekki væri hægt að afgreiða í yfirskattanefnd, heldur yrðu málið að fara til rannsóknar hjá lögreglu. Efnahagsbrotadeildin rannsakaði þessa tvo rekstrarþætti samhliða. Guðmundur Jónsson var sóttur á heimili sitt í Mosfellsbæ í gærkvöldi og færður til afplánunar vegna kynferðisbrota gegn þremur stúlkum sem voru skjólstæðingar hans í Byrginu. Guðmundur hafði ekki sinnt boðun í afplánun og því var hann handtekinn í gærkvöldi. Hans bíður nú tveggja og hálfs árs fangelsisvist vegna þeirra brota.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira