Bráðabirgðaáhættumat IFS kynnt fjárlaganefnd 21. desember 2009 21:34 Guðbjartur Hannesson.
Á fundi fjárlaganefndar í kvöld var farið yfir bráðbirgðaráhættumat frá IFS Greiningu á Icesave samningnum. Að sögn Guðbjarts Hannessonar formanns nefndarinnar hafði verið óskað eftir því að slíkt mat yrði unnið og féllst meirihlutinn á það en þó með þeim formerkjum að það myndi ekki tefja afgreiðslu málsins. Endanleg skýrsla IFS Greiningar kemur á Þorláksmessu en að sögn Guðbjarts er þó enn möguleiki á því að málið verði afgreitt úr nefndinni á morgun. Guðbjartur segir að niðurstöður skýrslunnar varpi engu nýju ljósi á Icesave-málið, frekar en önnur gögn sem borist hafi nefndinni. „Þarna er fyrst og fremst verið að meta áhrif þátta sem geta haft áhrif á það hversu auðvelt eða erfitt verði að borga Icesave þegar þar að kemur. Einnig er verið að skoða áhrif þeirra efnahagslegu fyrirvara sem settir voru í málinu." Guðbjartur segir að þetta staðfesti það sem áður hafi komið fram, að ákveðið öryggi sé í efnahagslegu fyrirvörunum. „Síðan má ekki gleymast að við getum alltaf borgað meira ef þannig stendur á auk þess sem við getum alltaf greitt upp lánið ef betri kjör bjóðast." Að sögn Guðbjarts hefur því lítið breyst í málinu eftir að fjárlaganefnd fékk meiri upplýsingar á borð við skýrsluna frá IFS Greiningu og lögfræðiálit frá Mischon de Reya. „Eftir stendur að taka ákvörðun um hvað er best í stöðunni, að ljúka þessu núna, reyna að fara enn til að ná betri samningum eða gera ekki neitt og taka áhættuna af því." Að sögn Guðbjarts verður það metið síðar í kvöld hvort málið verði klárað úr nefndinni á morgun eða hvort menn bíði fram til Þorláksmessu.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Sjá meira