Bókaútgefendur æfir yfir endursöluherferð Pennans 27. júní 2009 06:00 Kristján B. Jónasson, formaður Félags bókaútgefenda, segir Pennann og þar með ríkið vera að varpa sprengju inn á markað sem neytendur hafi verið ánægðir með. „
Menn eru ekki ánægðir. Og þetta er ekki bara einhver afmarkaður hópur bókaútgefenda heldur er breið samstaða meðal bókaútgefenda um þetta," segir Kristján B. Jónasson. Hann er þarna að vísa í endursöluherferð Pennans þar sem viðskiptavinum gefst kostur á að koma með kiljur frá árinu 2007 til 2009, selja hvert stykki fyrir 200 krónur og kaupa aðrar skilabækur á 400 krónur. Inneignarnótur er síðan hægt að nota til að fjárfesta í nýjum bókum eða öðrum varningi sem Penninn selur. Bókaútgefendur telja að með þessu sé Penninn að gefa bóksölu sumarsins langt nef. Kristján segir þetta átak óskiljanlegt í augum útgefanda. Þeir hafi ekki einu sinni verið látnir vita. „Rétt er að taka það fram að þetta átak stendur yfir í einn mánuð, júlí. Í þeim mánuði seljast hins vegar flestar kiljur því Íslendingar eru á faraldsfæti þá, júlí er hálfgerður kiljumánuður. En nú mun enginn kaupa sér kilju heldur koma allir með þær gömlu og skipta þeim fyrir einhverja aðra gamla. Á meðan rykfalla nýju kiljurnar við hliðina," Kristján segir jafnframt óskiljanlegt að fyrirtæki sem sé í eigu ríkisins sé að standa í svona loftfimleikum. „Maður spyr sig hvort ekki væri réttara að það styddi við samfélagið í stað þess að varpa einhverri sprengju inn á þennan markað sem neytendur hafa verið svo ánægðir með," segir Kristján og bendir á að verð á kiljum hafi lítið sem ekkert hækkað. Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri Pennans, telur ótta bókaútgefenda ástæðulausan. „Þetta hefur vakið alveg stormandi lukku, fólk hefur verið að nýta sér þetta sem góðan afslátt upp í nýjar bækur," segir Bryndís og bætir við að menn ættu bara að bíða og sjá. „Við vitum það alveg að fólk sækist eftir nýjum bókum og þetta átak á eftir að örva þann markað til muna," heldur Bryndís áfram og bendir jafnframt á að þetta gæti hugsanlega orðið til þess að starfsfólkið sjái jafnvel Íslendinga í bókabúðum yfir sumartímann. „Við erum ofsalega ánægð með viðtökurnar og fólk er ekki síður þakklátt, það getur nú hreinsað út úr hillunum og rýmt fyrir nýju lestrarefni. Þetta er einhver óþarfa taugatitringur hjá bókaútgefendum."
Mest lesið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Lífið Furðubandið sem tryllti netið Lífið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Ráðherrabarn komið í heiminn Lífið „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Lífið Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Tíska og hönnun Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Sjá meira