Skrifaði meistararitgerð um Elvis 20. ágúst 2009 06:00 Ólafur Halldór Ólafsson, eða Óli Dóri, gerði meistaraverkefni um Elvis Presley í Tennessee.fréttablaðið/gva
Ólafur Halldór Ólafsson, bassaleikari rokksveitarinnar Weapons, er nýkominn heim frá Tennessee í Bandaríkjunum þar sem hann skrifaði meistaraverkefni um sögu Elvis Presley, eins helsta áhrifavaldar síns og sveitarinnar. „Ég var í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands og ákvað að fara út síðustu önnina þegar ég var búinn með alla áfangana,“ segir Ólafur, en um skiptinám var að ræða. Meistararitgerðin fjallaði um sjónvarpsþættina sem konungurinn kom fram í og hvernig þeir höfðu áhrif á feril hans og dægurmenningu samtímans. „Ég fór í Graceland og Sun Studios og hitti ýmsa sem voru fróðir um þetta. Þetta var rosa gaman,“ segir Ólafur. „Ég hitti fyrrverandi kærustu hans, Wendy Jackson. Fór á tónleika með henni og hitti hana á eftir. Hún sagði að hún hefði deitað hann í smá tíma.“ Í Sun Studios, hljóðveri Presleys og fleiri kappa á borð við Johnny Cash, gerði Ólafur sér lítið fyrir og keypti fyrstu plötuna sem Cash gaf út. Hún er 78 snúninga og upprunnin úr dánarbúi Cash, sem fjölskylda hans gaf Sun Studios. Vegna ferðar Ólafs á heimaslóðir Presleys átti Weapons eftir að halda útgáfutónleika vegna plötu sinnar A Ditch in Time sem kom út fyrir jól. Bætt verður úr því á Sódómu Reykjavík í kvöld klukkan 21. Weapons stefnir á tónleikaferð um Bandaríkin í haust og gerð nýrrar plötu. Gordon Raphael, fyrrum upptökustjóri The Strokes, tók upp A Ditch in Time og hefur þegar boðið sveitinni að taka nýju plötuna upp í hljóðveri sínu í Berlín.- fb
Mest lesið Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Lífið Ætlar í pásu frá giggum Lífið Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Lífið Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Lífið Sjóðheitt og splunkunýtt Hollywood par Lífið Ræðir það ekki í fjölskylduboði ef þú hittir frænda þinn á swing-viðburði Lífið Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Lífið Langaði að passa inn en nýtur þess nú að skera sig úr Tíska og hönnun Icewear styrkir Þjóðhátíð Lífið samstarf Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Lífið Fleiri fréttir Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Ætlar í pásu frá giggum Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Sjóðheitt og splunkunýtt Hollywood par Katrín Edda selur í Hlíðunum Þriggja ára snáði stal senunni í messu í Fljótshlíð Fyrstu tónleikar Purrksins í fjörutíu ár Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Sögulegur klæðnaður á dreglinum Myndaveisla frá troðfullri tuttugu ára Bræðslunni Katy Perry og Justin Trudeau á stefnumóti „Þetta var algjört bíómyndamóment“ Samband Gallagher-bræðra sagt á hálum ís Harrý rétti fram eins konar sáttahönd Stjörnulífið: „Who the fuck is Kaleo?“ Ræðir það ekki í fjölskylduboði ef þú hittir frænda þinn á swing-viðburði Gordon Ramsay gerir upp Íslandsævintýri „Ekkert okkar grunaði að hann myndi fara þessa leið“ Destiny's Child með óvænta endurkomu Jóhanna Guðrún og Ólafur giftu sig Myndaveisla: Landinn skemmti sér konunglega í Vaglaskógi Bandaríkjaforseti birtir bull í bunkum Óvæntur Johnny Depp heiðraði Ozzy með Alice Cooper „Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Krakkatían: Dvergarnir sjö, klukkuturn og plánetur Ragga Holm og Elma giftu sig „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Sjá meira