Jóhanna ræddi framferði Breta við framkvæmdastjóra NATO 20. ágúst 2009 15:27
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ræddi þá ákvörðun breskra stjórnvalda að beita hryðjuverkalögum gegn íslenskum hagsmunum í fyrra við Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í dag. Jóhanna bauð Anders Fogh og fylgdarliði hans til hádegisverðar í Ráðherrabústaðnum í dag. Áður áttu þau stuttan fund þar sem Jóhanna gerði Andres Fogh meðal annars grein fyrir pólitískum og fjárhagslegum afleiðingum þeirrar ákvörðunar breskra stjórnvalda að beita hryðjuverkalögum gegn íslenskum fyrirtækjum og stofnunum á síðastliðnum vetri, að fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. „Forsætisráðherra fagnaði því að ákvæðum laganna hefði nú verið aflétt en lagði áherslu á hversu slæmt fordæmi hefði verið sett í samskiptum bandalagsríkja, þegar löggjöf sem aðallega væri ætluð til nota í sameiginlegri baráttu gegn alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi, hefði verið beitt gegn vinaþjóð sem hefði orðið fyrir gífurlegu áfalli vegna hruns fjármálakerfisins," segir í tilkynningunni. Fyrr í dag fundaði Anders Fogh með Össuri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra. Hann sagði á fundi með blaðamönnum að hann hefði vissulega áhyggjur af efnahagslegum deilum milli aðildarríkja NATO, Hollands og Bretlands annars vegar og Íslands hins vegar. Anders Fogh vildi þó ekki tjá sig um aðgerðir Breta í október síðastliðnum.
Tengdar fréttir Anders Fogh vildi ekki tjá sig um framferði Breta gegn Íslendingum Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, er staddur á Íslandi. Er þetta fyrsta heimsókn nýs framkvæmdastjóra NATO til aðildarríkis bandalagsins. 20. ágúst 2009 12:10 Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Erlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Fleiri fréttir Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Sjá meira
Anders Fogh vildi ekki tjá sig um framferði Breta gegn Íslendingum Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, er staddur á Íslandi. Er þetta fyrsta heimsókn nýs framkvæmdastjóra NATO til aðildarríkis bandalagsins. 20. ágúst 2009 12:10