Jóhanna í FT: Bretar særðu Íslendinga Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. október 2009 08:22 Jóhanna Sigurðardóttir er harðorð í garð Breta, Hollendinga og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Mynd/ Stefán.
Jóhanna Sigurðardóttir gagnrýnir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og bresk og hollensk stjórnvöld harðlega fyrir að tefja fyrir efnahagsbata á Íslandi í breska blaðinu Financial Times. Forsætisráðherra, segir í skriflegu svari við spurningum Financial Times, að það sé óásættanlegt að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi tafið endurskoðun efnahagsáætlunarinnar mánuðum saman. Endurskoðunarinnar sé krafist til þess að Íslendingar geti fengið þau lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem lofað hafi verið. Jóhanna gagnrýnir jafnframt Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, fyrir ákvörðun hans fyrir ári síðan að beita hryðjuverkalögum til að frysta eigur Íslendinga. Þetta hafi orðið til þess að dýpka kreppuna á Íslandi og skaða samskipti milli tveggja ríkja Atlantshafsbandalagsins. „Að stimpla vini sína og bandamenn til langs tíma sem hryðjuverkamenn er eitthvað sem við munum varla gleyma. Það særir," er haft eftir Jóhönnu. Þá sagði Jóhanna að það væri ósanngjarnt að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Norðurlöndin skilyrtu lán sín til Íslendinga við lausn á Icesave deilunni. Hún vonaðist þó til að endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins yrði tekin fyrir á næstu vikum. Þá sagði Jóhanna að bresk og hollensk stjórnvöld gætu ekki þvegið hendur sínar af því gallaða reglugerðaverki sem leiddi til þess að það fór sem fór hjá Landsbankanum í Bretlandi og Hollandi.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Fleiri fréttir Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Sjá meira