Segir fjárveitinguna vonbrigði 6. október 2009 07:30 Forstjórar norrænu samkeppnisstofnananna eru sammála um að efla þurfi eftirlit í kreppu. fréttablaðið/gva „
Lækkun á fjárveitingum sem ráðgerð er í fjárlagafrumvarpinu veldur að sjálfsögðu vonbrigðum," segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins (SE). Gert er ráð fyrir 285 milljóna fjárveitingu í fjárlögum fyrir árið 2010 sem jafngildir þrjátíu milljóna króna lækkun að raungildi milli ára. Samkeppniseftirlitið hefur í fjárlagaferlinu lagt fram tillögur sem miða að því að efla stofnunina. Á þessu ári voru settar fram óskir um auknar fjárveitingar og Páll Gunnar hefur bent á að SE sé undirmannað í ljósi sífellt aukinna verkefna. „Það er sérstaklega mikilvægt á tímum efnahagsþrenginga að standa vörð um samkeppnina og beita í því skyni ströngum samkeppnisreglum, í því skyni að hraða efnahagsbata," segir Páll Gunnar. „Þetta er kjarninn í sameiginlegri stefnu norrænna samkeppnisyfirvalda, sem kynnt var hér á landi um miðjan síðasta mánuð." Í skoðanakönnun sem unnin var í sumar fyrir SE telja 78 prósent stjórnenda fyrirtækja og 91 prósent almennings að veita þurfi fyrirtækjum og opinberum aðilum meira samkeppnislegt aðhald. Páll Gunnar segir að SE muni halda áfram að tala fyrir eflingu þess. „Það hvernig úr þessu fjármagni spilast verður síðan að koma í ljós," segir hann um mannahald og hugsanlegar uppsagnir vegna niðurskurðarins.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Fleiri fréttir Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Sjá meira