Drakk stíflueyði og lést eftir líkamsárás 8. október 2009 06:00 Lögregla og sjúkralið Fjöldi lögreglu- og sjúkrabíla fór í Hörðaland þegar ljóst varð að þar hefðu átt sér stað alvarlegir atburðir sem jafnvel gætu leitt til dauða.Fréttablaðið/Garðar
Karlmaður og kona voru flutt á gjörgæsludeild Landspítalans eftir líkamsárás í Hörðalandi í Fossvogi snemma í gærmorgun. Karlmaðurinn lést síðdegis í gær og konan var enn í öndunarvél þegar blaðið fór í prentun. Hún var þó ekki talin í lífshættu. Konan hlaut þung höfuðhögg og skurði á höfði. Maðurinn er talinn hafa drukkið stíflueyði, eða annan álíka ætandi lög, eftir að hann hafði veitt konunni áverkana. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst höfðu maðurinn og konan verið gift, en voru nýskilin. Hann hafði nýverið misst atvinnuna. Þau eiga saman tvö ung börn. Maðurinn var fluttur að heiman en hafði komið heim til konunnar um morguninn til þess að sækja börnin og fara með þau á leikskóla. Eftir að því var lokið sneri hann aftur í Hörðaland, þar sem harmleikurinn átti sér síðan stað. Það var svo rétt fyrir klukkan hálfníu í gærmorgun sem maðurinn hringdi í lögregluna. Hann kvaðst hafa valdið konunni miklum skaða, jafnvel svo miklum að hún væri látin. Að því búnu sleit hann símtalinu. Lögreglumenn úr umferðardeild, sem voru á bifhjólum í nágrenni við Hörðaland, fóru þegar á staðinn, svo og þrír lögreglubílar og fjórir sjúkrabílar. Fleiri bílar frá lögreglu og sjúkraliði bættust svo við þegar ljóst varð að harmleikur hefði átt sér stað í íbúðinni sem hefði leitt til þess að fólkið inni væri talið í lífshættu. Að auki komu lögreglumenn úr tækni- og rannsóknardeild fljótlega á staðinn. Maðurinn og konan voru flutt á Landspítalann í Fossvogi þar sem þeim var haldið sofandi í öndunarvélum í gær. Innanmein mannsins drógu hann til dauða nokkrum klukkustundum síðar. Konan gekkst undir aðgerð á höfði og jafnframt þurfti að sauma skurði sem hún hafði hlotið. Auk þess sem lögregla rannsakaði vettvang í gær var rætt við vitni, sem kynnu að geta gefið einhverjar upplýsingar. Maðurinn, sem var fæddur árið 1971, hafði verið búsettur hér um árabil og var íslenskur ríkisborgari. Konan er fædd 1966. jss@frettabladid.is
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira