AGS ekki deginum lengur í landinu en þörf er á 6. október 2009 15:21 Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Mynd/GVA
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn verði ekki deginum lengur í landinu en þörf er á. Hann segir fund sinn og Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, með Dominique Strauss Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í Istanbúl í dag hafa verið afar gagnlegan. Steingrímur telur að uppskeran af fundum undanfarinna daga verði sú að nú komist hreyfing á málefni Íslands. „Þeir vilja leggja sitt af mörkum til að málið komist áfram. Við fengum staðfest að það væri ekkert upp á okkur að klaga í þessum efnum og að við hefðum náð að uppfylla öll þau skilyrði sem til var ætlast af okkur. Sjóðurinn skilur mjög vel að við séum ósátt við það að málin hafa dregist," segir ráðherrann. Á fundinum kom ekki fram hvenær endurskoðun á áætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verður sett á dagskrá stjórnar sjóðsins. Steingrímur segir mikilvægt að hreyfing komist á þessi mál. „Maður skynjar það mjög sterkt í samtölum hér að það eru allir að bíða eftir því að mál Íslands losni úr þessari sjálfheldu. Þá held held að það muni verða mikil breyting á andrúmslofti í okkar garð." Verðum í samtarfi við AGS þjóni það tilgangi Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins var fullyrt að þingmeirihluti væri fyrir því að endurskoða beri ósk um aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Haft var eftir Þuríði Backman, þingmanni VG, að þingmenn flokksins vilji sjóðinn burt við fyrsta tækifæri. Steingrímur segir að ekki hafi verið tekin nein ákvörðun um annað en að halda samstarfi við sjóðinn áfram. Það geti þó hvenær sem er verið tekið til endurskoðunar. „Það á enginn sér það þann draum að Ísland þurfi að vera degi lengur en landið þarf á að halda í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Við verðum náttúrlega ekki lengi í samstarfi við sjóðinn ef það þjónar ekki neinum tilgangi og ef við komumst ekki áfram," segir Steingrímur. Fyrst um sinn verði látið á það reyna hvort að endurskoðunaráætlunin verði ekki afgreidd úr stjórn sjóðsins.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira