Fantasíumatseðill í fjárlagafrumvarpinu 5. október 2009 18:56
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir orkuskatt, eins og honum er lýst í fjárlagafrumvarpi, vera fantasíumatseðil sem ekki eigi að taka bókstaflega. Þá kveðst hún áskilja sér rétt til að fara vel yfir úrskurð Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra um Suðvesturlínu áður en hún lýsi sig sammála þeirri ákvörðun.Samtök iðnaðarins, orkugeirinn, álfyrirtækin og fleiri hafa brugðist hart við þeim áformum sem lýst er í fjárlagafrumvarpinu að leggja á sextán milljarða króna orkuskatta og fullyrt að með því verði komið í veg fyrir fjárfestingar og kreppan dýpkuð.Katrín segir að sér finnist viðbrögð þessara aðila full ofsafengin vegna þess að þegar verið sé að tala um skattheimtuna sé ekki verið að tala um að taka einhverja sérstaklega fyrir heldur sé þetta hugsað á almennum nótum.Katrín segir það rangt sem haldið hefur verið fram að hún hafi ekki vitað fyrirfram um þessa áformuðu sextán milljarða skattheimtu. Hún hafi hins vegar ekki vitað um þá hugmynd að gera það með einnar krónu gjaldi á kílóvattstund."Það sem ég hef hins vegar gagnrýnt - og sagt, er; að það var óþarfi að nefna einhvern svona hálfgerðan fantasíumatseðil í greinargerð með frumvarpinu," segir Katrín, og segir að menn eigi ekki að taka greinargerðina bókstaflega því þetta sé algerlega óútfært.Hún telur einnar krónu gjald ekki raunhæft. Það verði aldrei mögulegt að setja á slíkt gjald. Það hafi því verið óþarfi að nefna slíkt dæmi í greinargerð fjárlagafrumvarps, eingöngu til þess að þyrla upp moldviðri út af einhverju sem ekki verði að veruleika.Úrskurður Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra um Suðvesturlínu vekur einnig deilur. Spurð hvort hún sé sammála því sem Svandís gerði kveðst Katrín áskilja sér rétt til að fara vel yfir það mál áður en hún svari því.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Sjá meira