Innlent

Grímuklæddir innbrotsþjófar

Mennirnir voru á svona bifreið. Hún var þó svört á litinn. Þess má geta að myndin tengist ekki fréttinni beint.
Mennirnir voru á svona bifreið. Hún var þó svört á litinn. Þess má geta að myndin tengist ekki fréttinni beint.

Fjórir grímuklæddir menn brutust inn í íbúð í Innri-Njarðvík rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi.

Húsið var mannlaust þegar þeir brutust inn en íbúinn var í nálægðri íbúð. Hann varð var mannanna fjögurra og kallaði til þeirra. Við það hlupu þeir út úr íbúðinni og út í svarta GMC Yuokon bifreið.

Þegar húseigandi kannaði aðstæður kom í ljós að mennirnir höfðu snúið við borðum og rótað til í íbúðinni.

Þrátt fyrir mikla leit lögreglunnar á Suðurnesjum þá fundust mennirnir ekki. Þeirra er enn leitað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×