Ísland fær ræðismann í Tógó 23. janúar 2009 05:15 Hjónin Njörður P. Njarðvík og Bera Þórisdóttir, stofnendur SPES, með eitt af börnum í barnaþorpinu. Fréttablaðið/Anna Margrét
Íslensk ræðismannsskrifstofa verður opnuð í Afríkuríkinu Tógó hinn 11. febrúar. Kjörræðismaður verður Claude Gbedey, fjármálastjóri barnaþorps SPES frá stofnun þess. Embætti kjörræðismanns er ólaunað. Hlutverk hans er að gæta hagsmuna íslenskra ríkisborgara og styðja við stjórnmála-, viðskipta- og menningarsamstarf. Hjálparsamtökin SPES reka barnaþorp í borginni Lóme þar sem 92 börn eiga heimili. Hjónin Njörður P. Njarðvík og Bera Þórisdóttir, sem voru meðal stofnenda SPES, leggja af stað í árlega ferð til Tógó í dag. Meðal annars munu þau líta til með uppbyggingu nýs þorps sem hafin er. Þá munu þau heimsækja skólann sem börnin í þorpinu ganga í, en hann hafa samtökin stutt við bakið á. „Þarna eru fáir kennarar og léleg aðstaða. Við höfum meðal annars byggt skólastofur og látið leggja rafmagn, í samstarfi við foreldrafélag skólans,“ segir Bera. Samtökin finna fyrir kreppunni eins og aðrir. Bera segir þó framtíð þeirra þó ekki í hættu. „Við höfum tryggt okkur og eigum fé til að reka heimilið um ákveðinn tíma. En þrátt fyrir allt hefur almenningur haldið áfram að styrkja okkur og margir hafa haldið áfram að gefa ríkulega.“ - hhs
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira