Innlent

Náttúrufræðingar ósáttir með Reykjavíkurborg

Félag íslenskra náttúrufræðinga mótmælir því hvernig Reykjavíkurborg hyggst koma fram gagnvart starfsmönnum sínum í skerðingu á ráðningarsamningsbundnum kjörum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félagi íslenskra náttúrufræðinga. Þar segir ennfremur að starfsmenn hafi fengið óljósar upplýsingar um væntanlegar skerðingar á kjörum og boðað sé að þeir verði að taka afstöðu til þeirra á fundum með yfirmönnum.

„Með þessu háttarlagi er starfsmönnum stillt upp við vegg og reynt að koma í veg fyrir að mögulegt sé að semja um aðrar lausnir en þær sem borgin hefur ákveðið að leggja fram í sparnaðarskyni.

Félagið bendir á að um öll ráðningakjör gildir sami uppsagnarfrestur, sem í tilfelli Reykjavíkurborgar er 3 til 6 mánuðir.

Félagið leggur áherslu á að starfsmenn fái umþóttunartíma til að skoða hugmyndir borgarinnar og í framhaldi af því reyni aðilar, í sameiningu, að vinna að tímabundnum lausnum á rekstrarvanda Reykjavíkurborgar."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×