Innlent

Gæti tafist allt fram í ágúst

Endanleg niðurstaða ESA, Eftirlitstofnunar EFTA, um fjárfestingarsamning um álver í Helguvík, gæti verið tilbúin í byrjun ágúst.

Þetta er þó háð því að ESA berist fullnægjandi svör við spurningum sem hún sendi íslenskum stjórnvöldum 4. maí, og að íslensk stjórnvöld svari fyrir lokafrest sem þau hafa til 2. júní. Verði svörin tæmandi, hafa starfsmenn ESA tvo mánuði til að ljúka yfirferð sinni. Per Andreas Bjørgan, framkvæmdastjóri á sviði samkeppnis­mála og ríkis­aðstoðar hjá ESA, vill ekki gefa upp um hvað ESA hafi spurt íslensk stjórnvöld. „Við vorum með þónokkrar spurningar. Þetta er stór samningur og við þurfum að hafa allar upplýsingar." Um leið og svörin berist verði málið sett í forgang. „Við skiljum að það er mikilvægt að fá þetta á hreint," segir hann.

Fjárfestingarsamningur ríkisins og Century Aluminum var samþykktur á Alþingi í apríl. Þá var hann gagnrýndur nokkuð, og var meðal annars efast um að hann stæðist samkeppnissjónarmið EES-samningsins, sökum ívilnana ríkisins. - kóþ






Fleiri fréttir

Sjá meira


×