Innlent

Stjórnarmyndunarviðræður halda áfram

Forsvarsmenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hittust á ný í Alþingishúsinu, rétt eftir klukkan ellefu, til þess að ræða myndun minnihlutastjórnar. Fundarhöldin hafa til þessa gengið vel og hefur Jóhanna Sigurðardóttir, væntanlegur forsætisráðherra, sagst vonast til þess að ný ríkisstjórn líti dagsins ljós um helgina.

Steingrímur J. Sigfússon, Ögmundur Jónasson og Katrín Jakobsdóttir eru mætt fyrir hönd Vinstri grænna og fyrir hönd Samfylkingarinnar verða það Lúðvík Bergvinsson, Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×