Ísland ekki í áhættuflokk að óbreyttu 26. nóvember 2009 05:00 kynning Aðstæður ættu að skapast fyrir öfluga kynningu á Íslandi snemma á næsta ári segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Fréttablaðið/Anton
Lánshæfismat íslenska ríkisins mun að óbreyttu geta haldist í svokölluðum fjárfestingaflokki hjá matsfyrirtækjunum, og sleppa við að lenda í áhættuflokki versni ástandið ekki. Þetta kom fram í máli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á fundi Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga á Grand hóteli í gær. Már benti á að í nýjasta mati sem erlent matsfyrirtæki hefur gefið út eru horfur hér á landi sagðar stöðugar. Út frá því megi búast við að lánshæfismatið lækki ekki frekar komi ekkert óvænt upp á. Erlendir fjármagnsmarkaðir eru enn lokaðir ríkinu og íslenskum fyrirtækjum, en Már sagði Seðlabankann sjá vísbendingar um að það gæti verið að breytast. Mögulega muni slíkir markaðir brátt opnast á ný, hugsanlega þegar líða taki á næsta ár. Aðstæður ættu að skapast snemma á næsta ári fyrir því að ríkið fari í öfluga kynningu á landinu á erlendum mörkuðum, sagði Már. Þá sé mögulegt að ríkið ryðji leiðina á lánsfjármörkuðum með því að taka lán til að auðvelda íslenskum fyrirtækjum að fylgja í kjölfarið. Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion, áður Nýja Kaupþings, sagði mikilvægt fyrir íslensk fyrirtæki að erlendir lánsfjármarkaðir opnist, og líklega muni það gerast í nokkrum skrefum. Mikilvægt sé að ríkið ryðji brautina, en engu aðsíður sé ljóst að kjörin verði „heldur ömurleg“ til að byrja með. - bj
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Fleiri fréttir Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Sjá meira