Innlent

Stórreykingamenn brutust inn í sjoppu

Brotist var inn í Aðalsjoppuna við Tjarnargötu í Vogunum á Reykjanesi um eittleytið í nótt og þaðan stolið 20 kartonum af Winston-sígarettum, að andvirði um 170 þúsund krónur.

Á upptöku úr öryggismyndavél sést til tveggja ungra manna að verki. Báðir eru klæddir i dökkar hettupeysur, önnur með áberandi netmynstri. Báðir eru í bláum gallabuxum og annar í hvítum strigaskóm. Þeirra er nú leitað og biður lögreglan á Suðurnesjum þá, sem eitthvað kunna að vita um málið, að hafa samband.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×