Innlent

Nýr aðstoðarrektor í HÍ

Miðlægri stjórnsýslu Háskóla Íslands var skipt í tvo hluta í gær. Annars vegar í málefni vísinda og kennslu og hins vegar í málefni fjármála og reksturs.

Jón Atli Benediktsson, prófessor og aðstoðarmaður rektors og þróunarstjóri HÍ, verður aðstoðarrektor vísinda og kennslu jafnframt því að vera prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði. Guðmundur R. Jónsson, prófessor og sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs, verður framkvæmdastjóri fjármála og reksturs jafnframt því að vera prófessor í véla- og iðnaðarverkfræði.

Fram kemur í tilkynningu frá HÍ að um sé að ræða breytingar á starfsskyldum þeirra Jóns Atla og Guðmundar án þess að neinn kostnaðarauki verði fyrir Háskóla Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×