Innlent

Landsbyggðarþingmenn missa aðstoðarmenn sína

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, lagði tímabundið niður aðstoðarmannakerfið. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, lagði tímabundið niður aðstoðarmannakerfið. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Þingmenn landsbyggðarkjördæmanna munu ekki hafa aðstoðarmenn á næstunni, samkvæmt ákvörðun sem forsætisnefnd Alþingis tók í morgun. Það var Ásta Raghneiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sem lagði tillögu fyrir forsætisnefnd um að afnema tímabundið aðstoðarmannakerfið.

Hún segir í samtali við fréttastofu að óvíst sé hvenær aðstoðarmannakerfið verði tekið upp að nýju. Til standi að meta árangurinn af því.

Ásta Ragnheiður segir að ekki hafi komið til tals að leggja af stöður aðstoðarmanna formanna stjórnarandstöðuflokkanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×