Hugmyndin galin segir talsmaður LL 13. október 2009 06:00 Forsvarsmenn Landssamtaka lífeyrissjóða funduðu með fjármálaráðherra snemma á þessu ári. Fréttablaðið/Pjetur
Mikill ávinningur yrði af því að greiða upp skuldbindingar ríkisins vegna Icesave með láni frá lífeyrissjóðunum, að mati Viðskiptaráðs Íslands. Hugmyndin er galin, segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða (LL). „Aðkoma lífeyrissjóðanna í endurreisninni getur bæði verið fjölþættari og umfangsmeiri,“ segir í nýju áliti Viðskiptaráðs Íslands. Finna megi leið til að sjóðirnir geti komið að samningaborðinu við lausn Icesave-deilunnar. „Mikill ímyndarlegur ávinningur væri fólginn í því að greiða upp skuldbindingar með láni ríkissjóðs frá lífeyrissjóðunum. Að sama skapi eru hagsmunir sjóðanna og hins opinbera samtvinnaðir á ýmsan máta og því mun betra að lífeyrissjóðir væru mótaðili slíks lánasamnings en erlendir ríkissjóðir,“ segir í álitinu. „Þetta er alveg galin hugmynd,“ segir Hrafn. Hann segir miklu skipta fyrir lífeyrissjóðina að vera með hluta eigna sinna erlendis. Í lok ágúst námu eignir erlendis samtals 515 milljörðum króna. Með því að lána ríkinu svo mikið fé verði í raun gegnumstreymi í lífeyrissjóðunum, áhættan stóraukist og mögulega þurfi að skerða réttindi sjóðsfélaga. Þá verði raunveruleg hætta á því að lífeyrissjóðirnir verði þjóðnýttir. Viðskiptaráð nefnir fleiri leiðir til að nýta lífeyrissjóðina, til dæmis til að flýta fyrir afnámi gjaldeyrishafta og lækkun stýrivaxta. „Með skattlagningu inngreiðslna má mýkja aðlögun ríkisfjármála. Framkvæmdir á vegum sjóðanna geta að sama skapi vegið upp á móti minna útgjaldasvigrúmi hins opinbera og þannig stutt við eftirspurn og atvinnustig,“ segir í tilkynningu ráðsins. Hrafn segir tillögurnar greinilega afrakstur hugarflugsfundar hjá Viðskiptaráði, og stangist raunar að vissu leyti á. Talað sé um að lífeyrissjóðirnir komi að uppbyggingu samhliða því sem lagt sé til að skattur verði lagður á inngreiðslur, sem myndi draga verulega úr afli sjóðanna. - bj, óká
Mest lesið Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Innlent Lauma sér inn í útfarir og senda kirkjuvörðum fingurinn Innlent Ágengir ferðamenn hafi sært syrgjandi Mýrdælinga Innlent Halla og Björn ætla til Nýja Íslands Innlent Vonast til að spáin rætist ekki: Rigning og 22 metrar á sekúndu Innlent Dóttirin í Súlunesi ákærð Innlent Fjórir látnir eftir skotárás á Manhattan Erlent Maxwell biðlar til Hæstaréttar Erlent Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns Innlent Íhuga að greiða sextíu milljarða til að friðþægja Trump Erlent Fleiri fréttir Hvað á að gera um Verslunarmannahelgina? Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ökumaður stöðvaður og kærður fyrir fjölmörg umferðalagabrot Lauma sér inn í útfarir og senda kirkjuvörðum fingurinn Versta sviðsmyndin, galið greiðslumat og óvæntur fundur Fimm prósent fallið fyrir ástarsvikum Halla og Björn ætla til Nýja Íslands Engin fjármögnun gereyðingarvopna á Íslandi Enn varað við svikapóstum: „Við hlökkum til að fá jákvæða svörun frá þér“ Samstarfið við Íra og Frakka tímafrekt Hefja gjaldtöku við höfnina í Stykkishólmi Ágengir ferðamenn hafi sært syrgjandi Mýrdælinga Neyðarástand á Gasa og ágengir túristar angra kirkjugesti Dóttirin í Súlunesi ákærð Vonast til að spáin rætist ekki: Rigning og 22 metrar á sekúndu Rannsaka áhrif samfélagsmiðla á heilastarfsemi barna Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Gat ekki sannað að verkstæðið tjónaði vélina Mögulegur fyrirboði um goslok Fundaði með Guterres: Tveggja ríkja lausnin sé eina lausnin Ungir menn staðnir að því að skjóta gelkúlum á vegfarendur Enn gýs úr einum megingíg og virknin nokkuð stöðug Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Styttist í háþróuð gervigreindarsvindl á íslensku Setja þurfi meiri þunga í hagsmunagæslu gagnvart ESB Neyðast til að endurbyggja grunnskólann vegna myglu Bílar fullir af bensínbrúsum séu úti um alla borg Áhyggjur af tollum ESB, olíuþjófur gómaður og fífldjarfir ferðamenn „Í minningu sonar - og allra þeirra sem aldrei komu heim“ Sjá meira