Ítrekun frá Mugison 13. október 2009 06:00 Mugison ítrekar að efnið sé fáránlega gott. fréttablaðið/Völundur „
Mér fannst þetta sniðugt því maður er alltaf að fá ítrekanir inn um lúguna hjá sér – þar sem er verið að biðja mann um eitthvað aftur. Þetta er náttúrlega allt gamalt efni á plötunni – þannig séð. Maður er að reyna að vera svona Baggalúts-sniðugur,“ segir tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson – Mugison. Mugison sendir á næstunni frá sér plötuna Ítrekun. Platan inniheldur úrval af lögum Mugisons í útgáfum sem hafa orðið til á tónleikum um allan heim undanfarin misseri. Rokkskrímslin Addi og Guðni úr Dr. Spock, hljómborðssnillingurinn Davíð Þór og hinn fingrafimi Pétur Ben skipuðu hljómsveit Mugisons og tóku plötuna upp með honum í janúar á þessu ári. „Lögin hafa spilast til einhvern veginn. Það er fyndið hvernig lög spila sig sjálf í svona öðruvísi útgáfur,“ segir Mugison. „Mér fannst nauðsynlegt að eiga útgáfurnar þannig að við fórum í stúdíó um daginn og lékum okkur aðeins. Svo sat ég á þessu. Svo fór ég að mixa og fattaði að þetta er alveg fáránlega gott efni og langaði að gefa það út.“ Mugison fer yfirleitt óhefðbundnar leiðir í umslagshönnun og hefur fengið heilu bæjarfélögin með sér í föndrið. Ítrekun er engin undantekning. „Ég ætla að stimpla koverið með ítrekun,“ segir hann. „Platan verður eiginlega í umslagi – svolítið Intrum-leg pæling. En ekki eins alvarleg og Intrum og miklu ódýrari. Ég ætla að hafa plötuna eins og ódýra og hægt er.“ - afb
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Fleiri fréttir Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Sjá meira