Borgin byggði piparkökubæinn að nýju 24. desember 2009 05:00 „Mannvirkin“ skipta þúsundum og fermetrarnir líka. mynd/björgólfur hávarðsson
Piparkökubærinn í Bergen, sem er sá stærsti í heimi, var eyðilagður af ölvuðum manni sem ekki gat gefið neina skýringu á framferði sínu. Í bænum voru 1.960 mannvirki sem þöktu þúsundir fermetra, hann var byggður af tólf þúsund íbúum borgarinnar; fjölskyldum, leikskólabörnum og starfsmönnum fyrirtækja. Þegar ljóst var að öll þessi vinna var að engu orðin vegna drykkjuláta, upphófst ein mesta leit í sögu Bergen. Gerð var skýlaus krafa um að skemmdarvargurinn fyndist og fyrirtæki settu fé til höfuðs hans. Maðurinn fannst, reyndist vera 22 ára ónefndur karlmaður, sem sagðist ekkert muna. Andinn í borginni breyttist þó fljótt úr hefndarþorsta yfir í hinn sanna jólaanda. Opnun piparkökubæjarins var einfaldlega frestað um þrjár vikur og ákveðið að byggja hann upp aftur frá grunni. Aldrei hafa fleiri lagt fram krafta sína og með samstilltu átaki voru byggðir kastalar, kirkjur, hús, brýr og bátar. Einnig nokkrar bílaferjur, farþegaskip og olíuborpallar. Já, og svo auðvitað miðbær Bergen og allar hans frægustu byggingar. Bærinn sem nú hefur risið er sá stærsti í áratuga sögu þessarar norsku jólahefðar. Á laugardag höfðu 60 þúsund manns heimsótt piparkökubæinn og dregið að sér höfugan ilminn af sírópi, engifer og kanil. Ef heldur fram sem horfir verða slegin aðsóknarmet og syndir drukkins manns eru löngu gleymdar. - shá
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira