Guðmundur Steingrímsson fær mótframboð 31. janúar 2009 12:28 Gunnar Bragi Sveinsson
Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti framsóknarmanna í Skagafirði, sendi rétt í þessu frá sér yfirlýsingu þar sem hann sækist eftir fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Því er ljóst að Guðmundur Steingrímsson sem sækist eftir fyrsta sætinu í þessu sama kjördæmi hefur fengið mótframboð. Þetta kemur fram á fréttavefnum Feyki. „Íslenskt samfélag gengur nú í gengum mikla erfiðleika. Mestu skiptir að endurreisa efnahag þjóðarinnar, tryggja hag heimilanna og slá skjaldborg um undirstöðuatvinnuvegina, sjávarútveg og landbúnað eins og við framsóknarmenn samþykktum á nýliðnu flokksþingi okkar. Jafnframt legg ég áherslu á að náttúruauðlindir landsins verði nýttar á skynsamlegan hátt til að eflingar og uppbyggingar atvinnulífs. Framsóknarflokkurinn stendur á tímamótum þar sem hann hefur orðið við kröfu flokksmanna og þjóðarinnar um endurnýjun. Mikilvægt er að til starfa með nýrri forystu veljist aðilar er þekkja kröfur og þarfir umbjóðenda sinna og eru trúir grunngildum og stefnu flokksins. Ég hef, frá því að ég hafði aldur til, tekið virkan þátt í starfi Framsóknarflokksins. Í þeim störfum hef ég lagt áherslu á grunngildi og rætur flokksins sem hafa í gegnum tíðina gert hann að einum áhrifamesta stjórnmálaflokki landsins. Eftir þessu gildum er nú kallað. Ég vil leggja mitt að mörkum við að vinna að framgangi þessara gilda. Ég hef því ákveðið að bjóða mig fam til að leiða lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi í næstu alþingiskosningum. Í Norðvesturkjördæmi er mikið af hæfu fólki sem unnið hefur af heilindum árum sama að uppbyggingu Framsóknarflokksins og framgangi hans. Ég hef starfað með mörgu af þessu góða fólki og tel mig þekkja vel til flokksins og grasrótar hans. Ég fagna því fólki úr grasrótinni sem hyggst bjóða sig fram og hlakka til samkeppni og samstarfs við það og vona að flokksmenn virði það starf sem allt þetta fólk hefur innt af hendi."
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira