Gunnar Birgisson stefnir flokksbróður sínum Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. nóvember 2009 10:01 Gunnar Birgisson hefur stefnt flokksbróður sínum í Kópavogi. Mynd/ Vilhelm.
Gunnar Birgisson, fyrrverandi alþingismaður og bæjarstjóri í Kópavogi, hefur ákveðið að stefna Þórarni Ævarssyni flokksbróður sínum og íbúa á Kársnesi. Þórarinn segist hafa fengið stefnuna senda á föstudag fyrir viku. Áður hafi lögfræðingur Gunnars sent sér bréf þar sem kom fram að hægt væri að ná sátt í málinu ef Þórarinn greiddi Gunnari eina milljón í bætur og bæðist afsökunar á ummælum sínum. „Það kom náttúrlega ekki til greina," segir Þórarinn í samtali við Vísi. Þórarinn, sem er íbúi á Kársnesi, segir að forsaga málsins sé sú að hann hafi farið fyrir mótmælum árið 2007 vegna fyrirhugaðrar stækkunar á hafnarsvæði og stækkunar byggðar á Kársnesi. Það hafi verið stofnuð ansi mikil samtök gegn þessum áformum sem hafi leitt til þess að plönin fóru í salt. „Við vorum þarna að kýta við hvorn annan og höfum verið að gera það síðan. Nema hvað ég er flokksbundinn sjálfstæðismaður og það er náttúrlega ennþá erfiðara fyrir hann af því að þá getur hann ekki klínt því á mig að þetta séu einhver pólitísk samsæri Samfylkingarinnar eða einhverra annarra," segir Þórarinn. Þórarinn segir að þeir Gunnar hafi síðan átt í ritdeilum. Hann hafi síðan skrifað grein í Morgunblaðið í byrjun júní í sumar þar sem hann hafi skrifað sem sjálfstæðismaður en ekki sem íbúi Kársness. Þetta hafi verið á þeim tíma þar sem umræðan um Lífeyrissjóð starfsmanna Kópavogsbæjar og verktakasamning Kópavogsbæjar við dóttur Gunnars hafi staðið sem hæst. Í greininni hafi Þórarinn skorað á Gunnar að stíga til hliðar. „Ég notaði ansi kjarnyrta íslensku í þessari grein og hann er að stefna mér í kjölfarið á henni," segir Þórarinn. Gunnar Birgisson vildi ekki tjá sig um málið við Vísi þegar leitað var viðbragða hans.
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Fleiri fréttir Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Sjá meira