Innlent

Gleðst yfir árangri Bjarnfreðarsonar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ragnar Bragason gleðst yfir árangri myndarinnar.
Ragnar Bragason gleðst yfir árangri myndarinnar.
Ragnar Bragason, leikstjóri myndarinnar Bjarnfreðarson, segist afar ánægður með þær viðtökur sem myndin fékk á fyrstu dögum sýninga.

Myndin halaði inn 13 milljónum króna á fyrstu tveimur sýningardögunum og 11 þúsund bíógestir börðu hana augum. Í samtali við Vísi, segir Ragnar þessar viðtökur sérstaklega ánægjulegan í ljósi þess að ein dýrasta mynd sögunnar, Avatar hafi nýlega verið frumsýnd.

Ragnar hefur unnið hörðum höndum að heilum þremur sjónvarpsþáttarseríum um þá félaga, Georg, Ólaf Ragnar og Daníel undanfarin ár. Hann segir næstu daga vera óráðna, en hann sé ekki í verkefnaleit.

„Þetta er búið að vera svo stíft undanfarin tvö árin að ég er bara að taka út sumarfrí og jólafrí og allt það sem ég hef misst af. Ég ætla að taka því rólega fram í janúar, þegar maður byrjar að skrifa eitthvað nýtt," segir Ragnar. Eins og fram kom í Fréttablaðinu um daginn er hópurinn sem stendur að -vaktarþáttunum að undirbúa gerð sjónvarpsþátta sem munu gerast inni á geðdeild.

„Við höfum verið að hittast annað slagið og leggja drög að nýrri sjónvarpsseríu sem tengist geðsjúkdómum. Það verður ekki á dagskrá fyrr en 2011 þannig að fólk verður laust við okkur á næsta ári," segir Ragnar. Að öðru leyti sé framtíðin óráðin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×