Innlent

Óveðri á Vestfjörðum slotaði undir miðnætti

Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Óveðrinu á Vestfjörðum slotaði undir miðnætti og á sjötta tímanum í morgun hófu vegagerðarmenn snjómokstur á Óshlíð og Súðavíkurhlíð. Á báðum leiðunum hafa þó nokkur snjóflóð fallið. Bæjarstarfsmenn á Ísafirði og í Bolungarvík hófu líka mokstur innanbæjar en víða hefur snjór safnast í mikla skafla og þæfingur er á öllum götum.

Snjóeftirlitsmenn og Veðurstofan munu svo ráða ráðum sínum varðandi rýmingar, sem gripið var til í fyrrakvöld og í gær. Fimm íbúðarhús voru rýmd í Bolungarvík, nokkur iðnaðarhús á Ísafirði og nokkrir bæir í Skutulsfirði, Hnífsdal og í Önundarfirði. Það skýrist nánar með birtingu hvar snjóflóð hafa fallið utan byggða, en eftir því sem best er vitað varð hvergi tjón í þessu áhlaupi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×