Fær stuðning frá Microsoft 26. júní 2009 06:00 Microsoft býður almenningi upp á ókeypis niðurhal af nýjasta lagið Þórs, Sunny Day.
Fyrirtækið Microsoft býður almenningi upp á frítt niðurhal á lagi Þórs Breiðfjörð Kristinssonar, Sunny Day. Í hópi með Þór eru flytjendur á borð við Warren G og The Lemonheads. „Þetta er meiri háttar. Ég er ofboðslega spenntur," segir Þór Breiðfjörð Kristinsson. Stórfyrirtækið Microsoft býður almenningi upp á frítt niðurhal af nýjasta smáskífulagi hans, Sunny Day, á heimasíðu sinni, Myspace.com/windows. „Þetta er enginn milljónasamningur sem ég fæ í vasann en þeir eru að setja helling að peningum í að kynna þetta." Þór var valinn ásamt eitt þúsund öðrum flytjendum víðs vegar að úr heiminum til að taka þátt í nýju markaðsátaki á netinu. Samkvæmt samningi Microsoft verður tugum milljóna eytt í að kynna tónlist þeirra og vekja um leið athygli á auknum áhuga fyrirtækisins á tónlist. Boðið verður upp á ókeypis niðurhal á einu lagi frá hverjum listamanni í 120 daga en þrátt fyrir það fá þeir greitt fyrir hvert niðurhal. Á meðal annarra flytjenda sem voru valdir í verkefnið eru rapparinn Warren G og hljómsveitin The Lemonheads. „Ég er alveg himinlifandi yfir þessu og þetta er vonandi eitt af skrefunum í að koma tónlistinni minni út í heiminn. Það er ekki verra að byrja með svona sumarlagi," segir Þór. Hann veit ekki hvernig Microsoft hafði uppi á sér en grunar þó að vera hans á síðunni Reverbnation.com hafi haft eitthvað um það að segja. „Þetta er ekki slæmt. Maður situr hérna og er að vinna í netkynningu og ýmsum málum. Maður er að ýta boltanum hægt af stað og svo dettur eitthvað svona inn." Þór er búsettur í Nova Scotia í Kanada en lék áður í söngleikjum á West End í London. Hann gaf á síðasta ári út sína fyrstu sólóplötu, Running Naked, og er Sunny Day annað smáskífulagið af henni. Hann býst ekki við því að halda tónleika hér á landi á þessu ári en eitthvað tónleikahald er fyrirhugað í Kanada. Nánari upplýsingar um Þór má sjá á heimasíðu hans Thorkristinsson.com.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira