Innlent

Viðamikil leit að Aldísi skipulögð

Aldís Westergren.
Aldís Westergren.
Björgunarsveitir Landsbjargar og lögreglan hafa skipulagt viðamikla leit í dag að Aldísi Westergren, sem hvarf frá heimili sínu við Gvendargeisla í Grafarholti 24. febrúar. Fljótlega var farið að grennslast fyrir um hana og svo hófst leit, en ekki hefur verið leitað skipulega það sem af er vikunni. Lögregla beinir því til huseigenda og húsbyggjenda á svæðinu og í grennd að svipast um í vinnuskúrum og nýbyggingum, en leitað verður á stærra svæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×