Býttiátak hjá Eymundsson 26. júní 2009 06:00 Bryndís Loftsdóttir vörustjóri. „
Þetta er ekkert aprílgabb, við ætlum að byrja í dag að taka á móti öllum íslenskum og erlendum vasabrotsbókum sem gefnar hafa verið út árið 2007 eða síðar og greiða fólki 200 kr. fyrir stykkið í formi inneignarnótu,“ segir Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri hjá Eymundsson. „Inneignarnótuna er svo hægt að nota upp í nýjar eða notaðar bækur eða aðrar vörur sem fáanlegar eru í verslunum okkar. Hugmyndin kom frá mætum bóksala úr okkar röðum en líkt og kaffihús og langur afgreiðslutími bókaverslana hefur þetta auðvitað þegar verið reynt erlendis.“ Í framkvæmd er þetta keimlíkt skiptibókamarkaði námsbóka sem hefur tíðkast hér um áratugaskeið. „Við lágum lengi yfir þessu en sáum ekkert nema jákvæða vinkla á hugmyndinni. Auralitlir lesendur þurfa ekki að örvænta lestrarlaust sumar, þeir geta einfaldlega komið eldri bókum sínum í verð og keypt aðrar í þeirra stað og við fáum líf og fjör í verslanir okkar. Bókaútgefendur hræðast ef til vill að þetta dragi úr sölu á nýjum bókum en það tel ég vera ástæðulausan ótta því fólk getur einmitt komið með gömlu kiljurnar sínar og keypt splunkunýjar bækur í staðinn,“ segir Bryndís og er brött að vanda. Eina skilyrðið sem Eymundsson setur er að bækurnar séu í kiljuformi, í sölulegu ástandi og útgefnar á árunum 2007 til 2009. Bækurnar munu þeir hjá Eymundsson svo selja aftur á 400 krónur stykkið en jafnframt bjóða þriðju bókina fría svo hægt verður að kaupa þrjár kiljur fyrir 800 krónur, sem er vel boðið og í anda okkar tíma. Býttiátakið mun standa allan júlí.
Mest lesið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Lífið samstarf Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Tónlist Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Fleiri fréttir „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Sjá meira