Íslenskir kvenfrumkvöðlar hitta Viktoríu krónprinsessu 4. október 2009 15:16 Kristín Pétursdóttir og Halla Tómasdóttir. MYND/Vilhelm
Svana Helen Björnsdóttir framkvæmdastjóri Stika og Vilborg Einarsdóttir framkvæmdastjóri Mentors munu hitta Viktoríu krónprinsessu Svíþjóðar í viðhafnarkvöldverði á morgun mánudaginn 5. október. Þær hafa verið valdar fulltrúar íslenskra kvenfrumkvöðla í Evrópuverkefninu EU Network of Female Entrepreneurship Ambassadors ásamt Höllu Tómasdóttur og Kristínu Pétursdóttur frá Auði Capital. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þar segir ennfremur að val fyrirmyndarfrumkvöðlanna hafi verið unnið í samtarfi við Enterprise Europe Network á Íslandi, Noregi og Danmörku. Markmið verkefnisins sé að fá kvenfrumkvöðla sem hafa skarað fram úr á sínu sviði í hverju Evrópulandi til að vera fyrirmynd annarra kvenna og miðla reynslu sinni og þekkingu á stofnun og rekstri fyrirtækja. „Munu þær m.a. koma fram á ráðstefnum og kynningarfundum í heimalandi sínu næstu tvö árin. Á mánudaginn er opnunarfundur verkefnisins og viðhafnarkvöldverður þar sem kvenfrumkvöðlar víða að úr Evrópu koma saman og fá viðurkenningu úr hendi Viktoríu krónprinsessu. Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Rannís og Útflutningsráð standa að skrifstofu Enterprise Europe Network á Íslandi og halda utan um verkefnið sem tekur tvö ár. Í valinu á fyrirmyndarfrumkvöðlunum var leitað að konum sem stunda rekstur í upplýsingatækni, byggingatækni og öðrum hátæknigreinum sem stuðla að mikilli atvinnusköpun og auknum hagvexti. Skilyrði fyrir valinu voru m.a. að konurnar hafi náð árangri í rekstri fyrirtækja sinna og að stefna um vöxt og þróun væri skýr, fyrirtækið hafi jákvæða og trúverðuga ímynd í þjóðfélaginu, stefna þess taki mið af samfélagslegri ábyrgð, og að frumkvöðlarnir séu fyrirmyndir bæði faglega og persónulega. Verkefnið er hluti af Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins (Competitiveness and Innovation Programme) og því er ætlað að stuðla að aukinni samkeppnishæfni þjóða með því að fjölga kvenfrumkvöðlum í Evrópu. Einungis 25% frumkvöðla á Íslandi eru konur en til samanburðar eru þær 30% frumkvöðla í Danmörku. Þess má geta að Noregur hefur sett það markmið að þessi tala sé 40% þar í landi."
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira