Innlent

Andarvarpið á Reykjavíkurtjörn gæti heppnast betur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Varp andarfugla við Reykjavíkurtjörn hefur ekki heppnast vel undanfarin ár.
Varp andarfugla við Reykjavíkurtjörn hefur ekki heppnast vel undanfarin ár.
Vísbendingar eru um að varp andarfugla við Reykjavíkurtjörn muni heppnast betur í sumar en á fyrri árum, að mati Gunnars Þórs Hallgrímssonar líffræðings.

Afkoma andarunganna á Tjörninni hefur ekki verið með besta móti undanfarin ár. Gunnar segir að þetta skýrist meðal annars af því að ætisskortur hafi verið hjá sílamávnum. Hann hafi því sótt meira inn í borgina en ella og étið ungana. Þá hafi Tjörnin verið tæmd fyrir tveimur árum og það gæti hafa haft slæm áhrif á þá hryggleysingja sem andarungarnir lifa á. „Því að þeir lifa aðallega á hryggleysingum. Það er að segja mýi og smákrabbadýrum," segir Gunnar.

Gunnar segir að horfur séu á þokkalegu mávavarpi í ár. „Þeir byrja allavega að verpa á réttum tíma og það er meiri ró yfir þeim en áður," segir Gunnar. Mávurinn sé því ólíklegri til að leita inn í borgina og á Tjörnina og fyrri ár. Það fari þó allt eftir því hvernig staðan verði á æti í sjónum fyrir mávinn. Gunnar ítrekar þó að mávurinn sé ekki eini þátturinn sem hafi áhrif á andavarpið. Staðan á botndýralífinu í Tjörninni verði að vera góð ef vel á að takast til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×