Pinewood brýtur blað 4. júní 2009 08:00 Einstakt Hugmyndir forsvarsmanna Pinewood þykja einstakar en kvikmyndagerðarmenn gætu haft aðgang að götumyndum frá <B>New York </B>og New Orleans ef þær ná fram að ganga. Kvikmyndir á borð við Dark Knight og <B>Quantum of Solace</B> hafa verið teknar upp í gamla kvikmyndaverinu í Buckinghamskíri.
Breska kvikmyndaverið Pinewood hyggst brjóta blað í sögunni með 200 milljóna punda framkvæmdum sínum í Buckinghamskíri. Pinewood hefur sótt um byggingarleyfi fyrir nýju kvikmyndaveri og breski kvikmyndaheimurinn heldur niðri í sér andanum. Hugmyndir forsvarsmanna Pinewood um nýtt kvikmyndaver þykja byltingarkenndar því innan veggja þess eiga kvikmyndaleikstjórar að geta komist í tæri við götumyndir frá París, New York og Feneyjum. Þá eiga þeir að geta fangað andrúmsloft hins sögulega franska hverfis í New Orleans og úthverfanna í Chicago, svo eitthvað sé nefnt. Einnig er gert ráð fyrir skólum, kirkju og íþróttavöllum í kvikmyndaverinu. Samkvæmt teikningum er ráðgert að kvikmyndaverið hafi yfir að ráða 100 ekrum af landi. Forsvarsmenn Pinewood hafa þegar sótt um leyfi fyrir framkvæmdunum til sveitarstjórnar Buckinghamskíris og eru vongóðir um að þessi draumur geti orðið að veruleika. Þessar framkvæmdir verða þó ekki ókeypis. Talið er að kostnaðurinn nemi 200 milljónum punda eða rúmum fjörutíu milljörðum íslenskra króna. Í yfirlýsingu frá Pinewood segir að hugsunin sé sú að bjóða kvikmyndagerðarmönnum upp á hagstæða lausn og að taka þátt í umhverfisvæðingu kvikmyndalistarinnar. „Framleiðendur geta með þessu kvikmyndaveri minnkað kostnað til muna og komið í veg fyrir löng og dýr ferðalög í flugvélum sem hafa mengandi áhrif á umhverfið," segir í tilkynningu frá Pinewood. Ef marka má aðstæður í kvikmyndaheiminum um þessar mundir, þar sem alþjóðlega lausafjárkreppan hefur stungið sér rækilega niður, má reikna með að kvikmyndagerðarmenn taki þessum hugmyndum Pinewood fagnandi. Pinewood-kvikmyndaverið er þekktast fyrir að vera heimili hinna Bond-kvikmyndanna og Carry On-bálksins. Nýlegar myndir sem hafa verið gerðar hjá kvikmyndaverinu má nefna síðustu Bond-mynd, Quantum of Solace, og Dark Knight, síðustu kvikmyndina um Leðurblökumanninn. Þess má til gamans geta að Hollywood-stórmyndin Prince of Persia: Sand of Time var að stórum hluta tekin upp í Pinewood-kvikmyndaverinu í London en eins og flestir kvikmyndaáhugamenn ættu að vita leikur Gísli Örn Garðarsson stórt hlutverk í henni. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira