Vill erlenda brotamenn strax í burt 6. október 2009 04:00 Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir liggja óafgreiddar tillögur lögreglu hjá Útlendingastofnun. Starfandi forstjóri hennar vill ekki tjá sig um fjölda mála í vinnslu.
Stefán Eiríkssson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, telur að heimildir í íslenskum lögum til að vísa erlendum brotamönnum úr landi séu ekki fullnýttar. Aðspurður kveðst hann vilja að Útlendingastofnun grípi strax inn í og taki á mönnum sem hingað koma til að fremja afbrot og séu sannanlega byrjaðir að brjóta af sér. Hún hafi víðtækar heimildir og geti fyrr gripið inn í í mörgum tilvikum. Hins vegar gangi ágætlega að vísa úr landi mönnum sem fengið hafa fangelsisdóma og afplána þá. Rósa Dögg Flosadóttir, starfandi forstjóri Útlendingastofnunar, segir að vanda verði mjög til undirbúnings brottvísunar þrátt fyrr að lagaheimild þar um sé beitt af fullum þunga. Lög um brottvísun kveði á um að hún sé heimil sýni útlendingurinn af sér háttsemi sem feli í sér raunverulega og nægilega alvarlega ógn gagnvart grundvallarsjónarmiðum þjóðfélags. „Almennt er því ekki unnt að taka ákvörðun um brottvísun fyrr en mál er fullrannsakað og nægar upplýsingar liggja fyrir til að meta hvort skilyrði brottvísunar séu fyrir hendi,“ útskýrir hún. Hvað varðar skjótari inngrip Útlendingastofnunar bendir lögreglustjóri á að stofnunin hafi verið upplýst um nýleg umfangsmikil innbrota- og þjófnaðarmál, þar sem á þriðja tug manna sem eru af erlendu bergi brotnir hafi átt beina eða óbeina aðild að. „Þarna er skýr forsenda að mínu mati til að setja málefni þeirra nú þegar í brottvísunarfarveg, jafnvel þrátt fyrir að ákærumeðferð sé ekki lokið, meðal annars með hliðsjón af því að sumir í hópnum hafa þegar játað.“ Spurður hvort lögregla hafi sent Útlendingastofnun tillögur um brottvísun manna sem hafi komið gagngert til landsins til að brjóta af sér og þegar hafið brotastarfsemi sína, segir Stefán svo vera í þremur tilvikum. Um sé að ræða tillögur um tvo menn sem sendar voru til stofnunarinnar í desember og einn til viðbótar í byrjun semtember. Þessi mál séu enn óafgreidd að því er hann best viti. Forstjóri Útlendingastofnunar kveðst ekki geta tjáð sig um mál í vinnslu. Hins vegar geti mál skipast þannig að þótt lögregla sendi stofnuninni tillögur um brottvísun sé ekki unnt að taka ákvörðun þar um strax þar sem mál viðkomandi einstaklings sé til meðferðar í refsivörslukerfinu og kunni að vera ástæða til að bíða niðurstöðu dómstóla. Rósa Dögg Flosadóttir
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira