Ólétt að skipuleggja danskvöld 24. júní 2009 03:00 Tanya pollock Sér um að skipuleggja sérstök raftónlistarkvöld.fréttablaðið/auðunn „
Ég tók mér frí frá spilamennskunni fyrir nokkrum árum. Þegar ég byrjaði svo að koma fram aftur fannst mér vanta vettvang fyrir elektróníska tónlist. Þá er ég ekki að tala um teknó heldur meira svona „ambíent“,“ segir tónlistarkonan Tanya Pollock um tilurð Weirdcore-tónlistarkvöldanna, en eitt slíkt verður haldið á skemmtistaðnum Jacobsen annað kvöld. Að sögn Tönyu eru kvöldin einkar vel sótt enda er mikill metnaður lagður í að fá efnilega tónlistarmenn til að leika fyrir dansi. „Við byrjuðum með kvöldin á Cafe Cultura en urðum fljótlega að færa okkur um set því staðurinn fylltist alltaf strax og færri komust því að en vildu. Nú eru kvöldin haldin á Jacobsen sem rúmar mun fleiri. Við reynum að velja bæði tónlistarmenn, sem hafa verið að spila lengi, og unga tónlistarmenn, þetta býður uppá mikla fjölbreytni.“ Tanya hefur í nógu að snúast þessa dagana því auk þess að skipuleggja Weirdcore-kvöldin á hún von á barni á næstu dögum. „Það þýðir ekkert að sitja aðgerðarlaus heima þó maður sé óléttur,“ segir Tanya galvösk. Tónlistarmennirnir Yoda Remote, Tonik og Sykur leika fyrir dansi annað kvöld, skemmtunin hefst stundvíslega klukkan 21 og er aðgangur ókeypis.
Mest lesið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Lífið Bieber gefur út óvænta plötu Lífið Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð Tíska og hönnun Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Lífið Ragga Holm og Elma trúlofaðar Lífið Borgin býður í tívolíveislu Tónlist Pfúff: Fjölskyldufrí og systkinin endalaust að rífast Áskorun Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Lífið Fleiri fréttir Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Sjá meira